Sláðu inn aðgangsorð til þess að skoða athugasemdir.
Safn fyrir flokkinn “almennt”Kallinn ekki dauður enn. Hef bara ekki gefið mér neinn tíma til að sinna þessu bloggi. Haft nóg annað að gera einhvernveginn. Kannski að Facebook steli öllum þessum tíma sem gæti farið í bloggið. Fokkins facebook. Tímaþjófur… Annars er ég hress. Sama á við um alla fjölskyldumeðlimi. Hrafn er síkátur sem er magnað miðað við allt eyrnastandið. Eigum tíma á miðvikudaginn hjá HNE til að meta stöðuna. Vinstra rörið er dottið úr þannig að við þurfum nýtt. Stemmning. Eða ekki. Skelltum okkur í bústað með Kollu & co, Hrafnhildi & co og þar var stuð og mikið fjör. Horfðum á Ítalíu skíta uppá bak og borðuðum fullt af góðum mat. Nú er mánudagur og grámyglulegur hversdagsleikinn tekinn við með fótbolta í bland. Bið ykkur vel að lifa…
Ég er stífluð.. ritstífluð.. Ætli ég sé ekki bara í post-facebook-depression.. ekki samt hætta að koma þið sem þó komið. Það eru alveg nokkrir búnir að biðja um lykilorðið að síðunni, ekkert voðalega margir en alveg nokkrir. Held að fólk sé eitthvað smeykt við að láta vita af sér.. ekki hafa áhyggjur, get ekki ímyndað mér að nokkur fái ‘nei þú mátt ekki fá lykilorðið fávitinn þinn!’ til baka Smelltu hér fyrir aðgang að dásemdinni sem er kúrbítur púnktur net! Fékk tölvupóst áðan sem hljóðar svo… Hæ Pétur. Okkur hefur borist beiðni um að eyða reikningnum þínum varanlega út. Reikningur þinn er nú óvirkur á síðunni og mun verður eytt út fyrir fullt og allt innan 14 daga. Ef þú vilt ekki láta eyða reikningnum þínum skaltu smella á eftirfarandi hlekk til að draga til baka beiðnina. Takk, Það líður um mig yndisleg frelsistilfinning! Skora á alla sem eru að hugsa um þetta að láta slag standa
originally uploaded by kúrbítur púnktur net. Á leið heim í strætó eftir góðan dag í vinnunni. Strætóinn var seinn, sem betur fer því ég var bissí og utanviðmig í vinnunni.. missti af einum strætó og var næstum búin að missa af þeim næsta líka. Þetta eru Tjörva-genin.. Ég komst heim að lokum í kærkomið helgarfrí!
|


Færslur (RSS)