Innlit pjúklit

Þetta þarftu: 4 stórar tortillur (4 í pakka), 2 kjúklingabringur, 2 step fajita sósa frá Discovery (fæst í Hagkaup), sýrður rjómi, paprika, brokkólí, rauðlaukur, hvítlaukur, rifinn ostur.

Svona gerirðu: Skerið kjúklinginn í flottar ræmur og steikið á pönnu upp úr olíu. Kryddið með kryddinu sem kemur með sósunni. Skerið paprikuna og rauðlaukinn í ræmur eða svona báta og hlutið brokkolíið niður í litla bita og saxið hvítlaukinn. Skellið þessu út á pönnuna og steikið svolítið. Hellið sósunni yfir og líka svona 2 msk af sýrðum rjóma og hrærið saman. Skiptið kássinu svo niður á tortillurnar, rúllið þeim upp og setið í eldfast mót eða ofnplötu. Smyrjið smá sýrðum ufir þær og drussið smá osti. Stingið inn í ofninn á 200 og bakið þangað til osturinn brúnast.

Að lokum: Það er auðvitað hægt að nota allskonar grænmeti í þetta. Upprunaleg uppskrift var með einhverju öðru minnir mig en mér finnst þetta best. Ef ég á ferskar kryddjurtir (t.d. kóríander) þá skelli ég því stundum með. Þegar ég blanda sýrðum saman við sósuna þá nota ég yfirleitt ekki alla sósuna í krukkunni. Þá verður erfiðara að vefja því allt verður svo soggí. uuu… já. Það er mjög gott að baka þetta í svona ílöngu ferköntuðu eldföstu móti því þá rúllast þetta ekki í sundur. Það er mjög hvimleitt :) Við borðum alltaf salat (iceberg og tómata) með þessu og sýrðan rjóma. Það þarf því eiginlega að kaupa tvær dollur af honum ef maður ætlar að eiga nóg. Rétturinn er passlegur fyrir fjóra. Þessi uppskrift á uppruna sinn í þætti af Innlit Útlit sem þá var með Völu Matt. Það skýrir nafnið ;) HB.

Skilja eftir svar