Tandoori kjúklingur undir grænmetishrúgu

Þetta þarftu: Kjúklingabringur, tandoori krydd, jógúrt án ávaxta, smá sítrónusafa, allskonar grænmeti t.d. gulrætur, sveppi, kúrbít, rósakál, brokkolí, blómkál, papriku osfrv, hrísgrjón/kúskús

Svona gerirðu: Settu tandoori kryddið (magn fer eftir smekk) saman við jógúrtina og hrærðu vel saman. settu smá kreistu af sítrónusafa saman við og hræra meira. Heltu þesu yfiri kjúklingabringurnar og láttu marinerast. Skerðu allt það grænmeti sem þú vilt hafa í passlega bita og skelltu í ofnfast fat. Ýttu því til hliðanna og settu bringurnar í miðjuna. Skellið þessu í oft og bakið við 200° þangað til að kjúllinn er steiktur í gegn. Sjóðið hrísgrjón eða kúskús til að borða með.

Að lokum: Þessi réttur er næstum því uppspuni inn frá rótum. Var að skoða kryddhilluna útí búð og slysaðiðst til að lesa aftan á tandoori kryddið, en þar var mælt með þessari marineringu. Þetta er svaka góð marinering og hefur verið notað á allskonar kjúklingaparta, ekki bara bringur. Svo er allgjör snilld að baka bara helling af grænmeti með þessu og prófa sig áfram mið mismunandi samsetningar.. Ég mæli með soldið stóru fati, ég á það til að skera niður soldið mikið grænmeti og ef maður er með margar tegundir þá verður þetta soldið magn.. HB

Skilja eftir svar