Jógúrtbollurnar hennar mömmu

Jógúrtbollurnar hennar Mömmu

Þetta þarftu: 3 egg, 400gr sykur, 250gr smjörlíki lint, 600gr hveiti, 1/2 tsk natron, 1/2 tsk salt, 1 dós kaffijógúrt, 2msk heitt vatn, 2 tappar vanilludropar, 1 poki spænir

Svona gerirðu: Öllur draslinu blandað saman og sett í svona muffinsform. Bakað við 190°C þart til bollurnar eru orðnar ljósbrúnar að ofan.

Að lokum: Konný mamma hans Péturs bakaði þetta oft þegar Pétur og systkini hans voru yngri. Pétri finnst þetta bara það besta í heimi! Uppskriftin fyllir alveg stóra macintosh dollu og það er ekkert betra en að stelast í hana. Við bökum þetta stundum við sérstök tækifæri og klárast þá skammturinn ansi fljótt! Algjör skylda að drekka ískalda mjólk með. HB

Eitt svar við “Jógúrtbollurnar hennar mömmu”
  1. Koný Sóley segir:

    já flott hjá ykkur að vera með þetta þarna og tala nú ekki um myndina af okkur sú er flott he he knús og kossar frá okkur ,Mamma Pabbi og Heimir junior.

Skilja eftir svar