Monthly Archives: April 2004

Nokkrar staðreyndir!

1. Það eru sirka 10 milljón múrbitar í Empire state building.

2. Úr geimnum séð þá er Las Vegas bjartasti staðurinn.

3. Ólíkt því sem margir halda, þá eru fílar ekki hræddir við mýs.

4. Twinkies geymist í 25 ár í lokuðum umbúðum.

5. Þegar Titanic sökk, þá voru 7500 pund af svínakjöti um borð.

6. Klukka sem er stopp, er rétt tvisvar á dag.

7. Börn vaxa hraðar á vorin.

8. Amerískar bílflautur flauta tóninn F.

9. Þú fæðist með 300 bein, en þegar þú verður fullorðin(n), þá eru þau 206.

10. Það er ómögulegt að hnerra með opin augun.

11. Lærleggur er jafnsterkur og steypa.

12. Tennur eru næstum jafnsterkar og grjót.

13. Bragðlaukar lifa í sirka 10 daga.

14. Mesta magn C vítamíns ávaxta er í berkinum.

15. Það er til Pez með kaffibragði.

16. 1 af hverjum 3 í Ísrael notar farsíma.

17. Meðal manneskja sofnar á 7 mínútum. (slæ það léttilega)

18. Meðal manneskja borðar 8 kóngulær á lífsleiðinni.

19. Þú getur ekki framið sjálfsmorð með því að halda niðri í þér andanum.

20. Á hverju ári slasa 8000 manns sig á tannstöngli.

viðvörun

ji.. ég verð að segja ykkur frá einu.. ég fór nefnilega á vídjóleiguna á sunnudaginn og tók mér mynd, sem reyndar er frásögu færandi því það gerist ekki nema þrisvar á ári. ég tók myndina intolerable cruelty með bjútíunum george clooney og catherine zeta jones.. þetta er ÖMURLEG mynd.. alveg ÖMURLEG!! ég hélt að þetta væri einhver ógó rómó mynd, enda var hugmyndin að horfa á hana með pésa, kúrandi uppí sófa, en neinei.. þetta var sko ekkert rómantísk og ekkert fyndin og bara ÖMURLEG mynd! ég var ekkert smá pisst, því Það voru hellings fleiri myndir sem mig langaði að taka.. djöfuls krapp. ekki horfa á hana..

Hólí makkaróní!! Fór að sjá Dawn of the dead áðan…Hólí sjitt segi ég nú bara. Þetta er rosaleg mynd. Þá meina ég rosaleg í þeim skilningi hvað hún er ógeðsleg. Bjarni fór með mér á hana og við vorum einfaldlega orðlausir á sumum stöðum í myndinni og annars staðar réðum við okkur ekki fyrir hlátri. Þetta er mynd sem ég hvet flesta til að sjá ef þeir hafa gaman að svona innyfla viðbjóði en aðrir ættu bara að halda sig heima eða jafnvel skella sér á Hidalgo sem ég ætla að sjá. Bæjó…

Halló! Síðan verður kannski soldið sein í smátíma. Það er verið að vírustékka serverinn. Sýnið örlitla þolinmæði og allt mun ganga vel.

Takk fyrir kærlega,

Kúrbítsvinir.

klapp-klapp-klapp-klapp

klöppum fyrir þorleifi erni arnarsyni sem skrifaði þetta.. ég get alveg ómögulega skilið hvernig nokkur manneskja geti kosið sér björn bjarnason til að vinna eins ábyrgðarmikil störf eins og honum er treyst fyrir í dag.. hérna er annað mikilvægt mál sem hann er að klúðra. hér með segi ég honum upp sem dómsmálaráðherra og bara ráðamanni yfir höfuð. ekki það að ég hafi einhverntíman ráðið hann í vinnu, það voru einhverjir pottormar sem gerðu það.. ég vona bara að hann fari að snúa sér að einhverju öðru sem hæfir honum betur.. hann gæti kannski farið að gera svona “fín listaverk” eins og árni johnsen 😉

Eigum við ekki bara að gefa Davíð Oddsyni fálkaorðuna eða eitthvað? Það var nú bara ekkert minna en forsíðufrétt á mbl.is að Davíð talaði við Bush í SÍMA!!! Til hamingju Davíð. Nú eru þér allir vegir færir….Fáviti. Já…fáviti segi ég vegna þess að engin annar en fáviti styður stríðsátök. Ég tala ekki um fáviti sem býr á Íslandi for kræing át lád. Þoli ekki svona. Áfram Bulls. Og hananú.

nba – i love this game

jæja, síðasta umferðin í nba fór fram síðastliðna nótt og kom í ljós hverjir spila við hverja í úrslitunum. la lakers átti alveg hreint magnaðan leik þar sem kobe bryant tryggði þeim tvisvar framlengingu með því að skora at the buzzer á móti blazers.. alveg magnað! þið getið séð þetta hérna. lakers vann leikinn og tryggði sér með því annað sætið í vesturdeildinni.. þá er bara úrslitakeppnin framundan og vá hvað hún verður spennandi held ég.. mínir menn komust samt ekki áfram í úrslit.. en þeir eru samt bestir sko! 😉 mavericks komust í úrslit og spila á móti kings.. ætli íslendingurinn fái að spila? það væri nú gaman. en kanski frekar ólíklegt..

bless farg

aaahhhhh þungu fargi af mér létt! og ég er búin að heyra í þorgrími og hann er kominn á áfangastað og nokkuð ánægður með lífið. sunna sæta er á leiðinni og sólin skín… aaahhhh..

misjafnir dagar

ég er eitthvað skrítin í dag.. ég er þreytt á að bíða og ég er pirruð á vinnunni og svo mörgu öðru, toggi og chloé farin til belgíu.. stundum koma dagar þegar mér finnst allt vera ómögulegt og ekkert fer eins og ég vil að það fari. eins og í dag. svo kannski daginn eftir er allt æðislegt og mér gengur allt í haginn. vonandi verður morgundagurinn svoleiðis. á morgun fæ ég sunnu kristínu í heimsókn til mín. ég ætla að passa hana á meðan mamma hennar er á námskeiði. það verðu nú gaman. sko.. það er alltaf eitthvað að hlakka til.. galdurinn er bara að finna það 🙂