brrrrr

Vangefið hvað það er kalt úti! Ég er búin að vera í vinnunni í hálftíma og mér er enn ekki orðið heitt. Ákvað því að ylja mér aðeins með því að pikka nokkur orð hér inn.

Vangefið hvað það er kalt!

Loksins er þessi janúar að verða búin. Égetsosvariða hann er búinn að vera mongó langur. Eftir afmælið hans Péturs og afmælisveisluna stórkostlegu hafa kuldi og blankheit sett mark sitt á dagana. Hlakka mjög mikið til að fá ferskan febrúar.

Afmælið hans Péturs var algjörlega toppurinn í þessum mánuði. Það var geggjað stuð í afmælisveislunni og hún heppnaðist eins og best verður á kosið. Við vorum með Méxíkóst þema. Mojito, Corona, Guacamole, Quasedillas, Fajitas, Salsa, El Guapo, Viva los amigos.. allan pakkann! Svo bara gítarspil og söngur og sjúkheit. Mjög skemmtilegt. Greyis þið fáu sem ekki gátuð komist.

Svo erum við búin að fá nýja útihurð. Svonna eldvarnarhurð. Mjög massív og flott. Smá límlykt og iðnaðarmannavesen, en ekkert svo.  Mjög gott að það sé búið að skipta um hurð núna í þessu kuldakasti því gamla var mjög óþétt.. var alltaf svona úúúúúú í vindinum. Svona úúúúúúúú gerir allt veður kaldara en það er.

hmm… eigum við að segja þetta gott? Mér er alveg að hitna, búin að drekka stóran kaffisopa og pikka þetta rosalega hratt þannig að mér er alveg að verða heitt. Er að hlusta á The National, nýjustu plötuna þeirra Boxer. Er  búin að ætla að hlusta á hana ansi lengi en var bara ekki búin að næla mér í hana fyrr en nú. Hún ofar bara góðu held ég. Rennur ljúflega. Fín svona vinnuhlustun.

Annars er ég á leiðinni í ræktina á eftir. Ekki veitir af. Er búin að slá ansi slöku við uppá síðkastið, sem er ekki nógu gott. Háværar kvartanir farnar að heyrast úr fataskápnum frá pilsum og buxum sem eru í lítilli notkun þessa daganna vegnar smæðar sinnar. Ég hef svosem ágætar afsakanir, en hver nennir að heyra þær? Nú verður bara tekið á því.

Hvað er annars með þetta súkkulaði út um allt?? It’s coming right for us!

HB

3 thoughts on “brrrrr

  1. já, nú verður sko tekið hrikalega á því þegar ég kem heim, ætla standa fyrir framan speglana í Hreyfingu, lyfta lóðum og kyssa bisebana.. og fá geðveikar harðsperrur, var að lesa bloggið mitt í gær og sá að það hefur ekki verið bloggað um harðsperrur lengi.. úr því verður bætt all snarlega!!!

  2. Eg smitast bara af eldmóði ykkar systra minna, kannski að ég drífi mig bara í ræktina og finni bíseppana mína…..

  3. jess!! mig vantar greinilega bara félagsskapinn! Ég er reyndar búin að vera með massa harðsperrur í massanum síðustu daga eftir mikil átök í bekkpressunni á mánudaginn.. meira svoleiðis takk!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *