Sit hérna í rólegheitunum og hlusta á cold water með Damien Rice og rigningardroparnir dynja á glugganum. Frekar notalegt. Ég kom sjálfum mér svolítið á óvart í dag. Málið er nebblega að það er mánudagur og þá er skapið stundum ekki uppá sitt besta. En ég var í svona prýðilegu skapi í allan dag. Kemur nú ekki oft fyrir að maður sé í góðu skapi á mánudögum. Málið er nebblega að mánudagarnir eru helvíti langir. Byrja klukkan 6 á morgnana og er yfirleitt ekki búinn fyrr en um 6. Jájá….situr maður hér og nöldrar yfir löngum vinnudegi þegar aðrir vinna 36 tíma á sólarhring og fá gíróseðil í launaumslaginu…
Monthly Archives: June 2005
æh hvað þetta var yndisleg helgi :o)
afmælisdagurinn minn (4.júní) var alveg hreint frábær! yndislegt veður eins og alltaf þennan dag ársins, sól og blíða. Pési bakaði handa mér vöfflur í morgunmat og bar fram með rjóma og jarðaberjasultu, ekkert smá gott. Svo komu systur mínar og makar þeirra og börn í heimsókn til mín um daginn og gæddu sér á súkkulaðikökunni sem Pési sá einnig um að baka og fleira góðgæti. Kolla og Palli gáfu mér þykka bók að lesa og eiður og birkir geisladisk til að hlusta á á meðan ég les :o) Svo ilmar öll íbúðin af blómunum sem ég fékk frá mömmu og pabba og hrafnhildi og bjössa.. Um kvöldið átti ég svo stefnumót með mínum heittelskaða sem kórónaði daginn. Er hægt að biðja um meira? þetta var frábært alltsaman, takk fyrir mig yndislega fólk :o)
Í gær skruppum ég og pési svo í bíltúr í krýsuvík og að Kleifarvatni.. það var gaman. tókum myndir sem þið fáið kanski að sjá seinna. Nú er elli bróðir komin í bæinn. sótti hann á flugvöllinn áðan. hann ætlar einmitt að skreppa á tónleika iron maiden á morgun. í kvöld ætla ég að hitta saumaklúbbinn á kaffihúsi. nóg framundan og tilveran frábær. loksins fór að rigna.. þetta rigningaleysi fer reykjavík ekki vel til lengdar..
bleble
ahhh…mikið svakalega er gott að vakna á sunnudagsmorgnum…
Í dag hóf ég feril minn sem blaðberi. Hann var stuttur. Í dag endaði ég feril minn sem blaðberi.. þangað til annað kemur í ljós. á morgun er uppáhalds dagurinn minn.
Ef þið eruð í vandræðum með hvað þið eigið að hlusta á kemur bara ein plata til greina…..Mezmerize með system of a down! VÁ!!!
Góðan daginn gott fólk :o)
Þá er ég búin að skila öllum þessum verkefnum sem ég var að tíunda um hér á síðunni um daginn. Skilaði síðustu skýrslunni í gær. Það var fín tilfinning. Nú er ég líka búin með alla kúrsana sem ég tek í þessu mastersnámi mínu og blasir þá mastersverkefnið við í öllu sínu veldi. Mér finnst það svolítið ógnvekjandi tilhugsun. Ekkert svolítið, heldur hellings. Nú er allt undir mér komið. Enginn sem segir mér hvað ég á að gera, hvenær og hvernig það á að vera.. skerí. ég hugsa að ég eigi eftir að hringsnúast svolítið næstu daga en vona að ég finni rétta stefnu þegar ég hætti að vera ringluð. þetta verður bara stuð.. haldiði það ekki??
Það sem einna helst er þó merkilegt við þennan dag er að Björn nokkur Görn á afmæli og eyðir hann deginum með sinni heittelskuðu baðaður í sólinni á Ítalíu.. ekki amalegur afmælisdagur það. Til hamingju með daginn gamli :*