Monthly Archives: November 2005

Eg er …

Stjórnmálaþurs

Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.

Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra – og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.

Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu… sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.

Hvaða tröll ert þú?

… Hvað eruð þið ??

Svei mér hvað ég er svangur. Spurning um að borða snemma bara. Brynjar er hjá okkur í heimsókn. Við sitjum hérna öll í sitthvorri tölvunni. Ég í makkarónunni, Brynjar í sínum lappa og Heiða í PC vélinni. Magnað…Endar ábyggilega með því að við spjöllum saman á msn bara. Annars er þetta bara búin að vera fín helgi. Fórum í afmæli á laugardaginn til Sunnu sætu. Þar var svaka stuð og allskonar kökur á boðstólum. Svo fór ég í pool með Ismari niðrí Skeifu og það var massa fínt. Fengum okkur öllara og svona. Sunnudagurinn fór í verslunarleiðangur og hangs…helvíti gott.

Hver er þessi Helgi??

Kemur þessi Helgi enn og aftur askvaðandi.. þessi verður örugglega skemmtilegur!
Byrjum hann á því að fara í ræktina strax eftir vinnu/skóla og gefst þá loksins tækifæri til að prófa nýju græjurnar mínar sem ég keypti mér hérna um daginn. Hóstinn er á undanhaldi og ég held ég meiki smá workout, vonandi.. Svo ætlum við að elda okkur sérdeilis prýðilegan fiskrétt í kvöldmatinn. Á morgun ætla ég að fara í skólann á meðan Pési fer í vinnuna og svo verður haldið í afmælisgjafaverslunarleiðangur til að kaupa afmælisgjöf handa Sunnu Kristínu sem heldur uppá þriggja ára afmælið sitt á Sunnudaginn. Þar verður, samkvæmt áreiðanlegum heimildum, boðið uppá súkkulaðiköku með nammi á, að sjálfsögðu!
Áður en það gerist ætlar Pési að sýna snilldar pool takta á móti Ismari á laugardagskvöldið á meðan ég geri eitthvað sérlega skemmtilegt á meðan.. (uppástungur vel þegnar). Þess má geta að foreldrar mínir og föngulegur litlbróðir minn ætla að vera í bænum á meðan á þessum Helga stendur og vonast ég eftir að hitta þau eitthvað. Kemur í ljós. Allavega í afmælisveislunni 😀
Góðan Helga!
(beðist er afsökunar á sérlega slæmum fimmaurum í nýlesinni færslu, höfundur kennir um sérlega miklu magni af sérlega sterku kaffi.. sérlega)

Stiklur

Góðan dag og velkomin í Stiklur síðustu daga.

  • Ég keypti mér nýja íþróttaskó og íþróttabuxur. Rosalega flott, var mjög nauðsynlegt að eignast þar sem gömlu skórnir meiða mig og gömlu buxurnar eru með gati í klofinu og næstum gegnsæjar. Ég er samt enn með bömmer yfir því sem ég borgaði fyrir.. ef við lýtum á björtu hliðarnar þá var þetta staðgreitt og visa-djöfullinn kom hvergi nærri!
  • Hittum Möttu og Hjálmar í drykk á Tapas barnum.
  • Kolla bakaði handa okkur vöfflur og bauð okkur í kaffi. Það var kærkomið enda langt síðan síðast. Þar hitti ég öll systkini mín, nema það yngsta..
  • Fórum út að borða á TGI Fridays með Þorgrími og Chloe og fengum fínasta mat sem kom á óvart.
  • Gerði lista yfir jólagjafainnkaup. Er búin að ákveða hverjum ég ætla að gefa jólagjöf og hvað það á að vera. Nú er bara að fara og versla !
  • Fórum í bíó með föngulegum systrum mínum tveimur, föngulegum stórabróður mínum og hans fríðu frú.. sáum In her shoes sem var bara ágætis ræma.
  • Lenti í miklum umræðum um hvaða leikarar mér finnst vera flottir og hverjir mér finnst ekki flottir. Komst að því að ég er ekki hrifin af fullkomnu útliti eða mjög fíngerðum karlmönnum. Nema þeir hafi einstaklega fallegt bros.. the smile says it all 🙂
  • Keypti óvart pepsi í staðinn fyrir pepsi max. Drakk tvö glös áður en Pétur fattaði hvað var í gangi. Þvílík martröð.. ojjj
  • Ég held ég sé loksins að losna við kvefið! Þetta er búið að vera ansi pirrandi, hef varla gert annað en að hósta og snýta mér síðustu rúmlega viku.

Þá er ekki fleira í þættinum í kvöld, veriði sæl.

Af kvefi og hvæsi

já góðir hálsar, ég er búin að vera með flensu síðustu daga. Sérstaklega leiðinlega hálsbólgu og hósta og hitaflökt. Búin að vera hálf mállaus þar sem eiginlega ekkert hefur heyrst í mér. Það sem heyrirst er á fáránlega háum tóni. Þetta er pirrandi ástand. Nú virðist sem flensan sé að færa sig á milli öndunarfæra, frá hálsi yfir í nef. Vaknaði stífluð í morgun en sem betur fer er stíflan farin núna. Vonandi á ég ekki eftir að verða eins langt leidd og konan hérna á myndinni, sem ég verð þó að hrósa fyrir að vera svona úrræðagóð. Það er alveg ferlegt að vanta snýtupappír þegar maður er með nefrennsli.. Ég hef ekkert farið í ræktina alla vikuna sem er grautfúlt. Á erfitt með að ímynda mér einhver afrek þar þegar ég get ekki farið með ruslið án þess að fá hóstakast. Kem öflug til baka í næstu viku því þá ætlar mér að verða batnað.
Annars er allt fínt að frétta. Erum bara búin að vera frekar róleg eftir síðustu helgi sem var algjört ævintýr. Skruppum í bíó í gær þar sem ég var orðin annsi pirruð á því að hanga inni. Sáum Kiss kiss bang bang í Kringlubíó. Alveg mögnuð mynd. Mjög skemmtileg og fyndin. Robert Downey Jr. er mjög skemmtielgur í henni og Val Kilmer líka. Myndin er sérlega vel skrifuð og langt frá því að vera dæmigerð eða fyrirsjáanleg. Húmorinn er líka ferskur og hressandi. Fáar klisjur hér á ferð.