All posts by Heiða Björk

jahérna.. við erum búin að missa það gjörsamlega. 15 mín búnar af seinni hálfleik og munurinn aftur orðinn 5 mörk…. þetta er agalegt. ég held að óli sé bara ekki búinn að skora nema þessi þrjú víti. hann tekur ekki skot utan af velli.. jahérna 6 mörk. og viggó tekur leikhlé. það var mikið. nú þarf eitthvað mikið að gerast….. jæja, einar minnkar aftur í 5 mörk….

roland er að massa þetta í markinu.. búin að verja 7 skot og eiginlega allt dauðafæri. staðan 9-6 eftir 21mín. núna fáum við víti.. óli er á línunni, klúðraði áðan……. og hann skorar. JÖSS 9-7 við erum að nálgast. OG ROLAND VER! guðjón valur í hraðaupphlaup og SKORAR!!!! eitt mark, þetta er bara eitt mark.. ROLAND VER AFTUR og við JÖFNUM!! síjitt maður þetta var bara svakalegt mark!! fjúhhh…

Pétur kominn heim og nú fá blótsyrðin að fjúka.. við erum aðeins að koma til, staðan 6-3 eftir 12mín.. eru þessir rússar allir eins? mér finnst þeir allir vera dökkhærðir með eins klippingu.. og svona bóndalegir í vexti. úfff.. egorov með svaka mark.. úff og roland er að verja eins og moððerfokker…

þetta er nú annars frekar asnalegt heimsmeistaramót.. hitinn við frostmark í höllinni, aldrei neinir áhorfendur nöfnin á leikmönnunum eru alltaf eittvhað brengluð og svo núna einhver olía á vellinum. Nú er held ég verið að líma auglýsingu á gólfið þar sem sleipi bletturinn er.. þetta er stórfurðulegt alltsaman..

ji.. núna eru bara allir leikmennirnir að klæða sig í gallana og hlé á leiknum !! það er einhver olía á gólfinu og þessvegna eru allir að renna á rassinn. en staðan er 5-0 fyrir rússa og sjö mínútur búnar.. þetta er hneysa, hneysa segi ég… pfheff!

þá er leikurinn við rússa byrjaður.. þetta byrjar ekki glæsilega. veit ekki hvað er eiginlega í gangi. menn eru bara að renna í gólfið og missa boltann og eitthvað fáránlegt. við erum ekki búin að skora mark og það eru fimm mínútur búnar. það er 4-0 fyrir rússa… jahérna hér… samt er roland búinn að verja tvö skot. við erum búin að eiga tvö léleg skot og thats it… 6 mínútur komnar og ekkert mark hjá okkur… 5-0 djöfull er þetta trist.. við erum að skíta upp á bak hérna!! díses.. þeir renna bara á þessu gólfi !! djöfulsins krappí aðstæður…… meira seinna