Category Archives: jibbý!

Mannvit og blóm

Stór og skemmtilegur dagur í dag!

Vinnan mín er orðin að Verkfræðistofunni Mannviti ! Frábær stemmning búin að vera í vinnunni í dag. Mjög flott hátíðarkaffi í morgun og svo var Mannvits-dóti dreift á starfsmenn. Fékk bol og penna og skvísu og allskonar nýtt og fínt dót. Við skáluðum í rauðvínsdreitli í hádeginu og svo fékk ég algjörlega óvænta sendingu til mín í vinnuna. Þennan líka æðislega blómvönd! Það var ótrúlega óvænt.. og hafði ekkert að gera með vinnuna 🙂 Í kvöld er svo eitthvað svaka Mannvits-geim og þar verður örugglega tjúttað.

Dagurinn hefur samt líka sína slæmu hliðar því ég er með dúndrandi hausverk og fór snemma heim úr vinnunni til að reyna að jafna mig fyrir kvöldið. Það vonandi tekst.

En vitið þið hvað? ég á blóóóóm!! 🙂

Originally uploaded by kúrbítur púnktur net.

kúrbítur púnktur net !!

Til hamingju við! Þetta hafðist allt saman að lokum. (7 9 13) Allt komið í gang! Verið velkomin á þessa stórglæsilegu heimasíðu sem við skópum. Þó við segjum sjálf frá þá er ykkur óhætt að trúa því að við erum snillingar.. lýtið (lítið? ha? Siggi Bjöss?) bara í kring um ykkur! þetta er magnað alveg hreint! Já sem sagt þá erum við hingað komin og ætlum að vera hér um ókomna tíð. Við eigum eftir að blogga hérna villt og galið bæði tvö og hér verður aldrei lognmolla. Við munum geysast fram á fákum fráum um lyklaborðið og gamminn geysa um málefni líðandi stundar.. tjá gott fólk það munum við. En núna er aldeilis farinn að segja til sín svefngalsinn. Kveðjum við því í bili. Eins og við segjum hér á kúrbítur púnktur net: þokkafokkingslega! Góða nótt. H+P