Kvöldið hér. Djöfull vona ég að ég komist í akstur í sumar. Fátt skemmtilegra en að rúnta um sveitir landsins á 40 tonna trailer. Það er hressandi. Það yrði líka ótrúlega gott að losna aðeins frá grænmetinu. Ég er orðinn fjandi spenntur eftir að sjá passion of the christ eftir mel gibson. Ég hef sjaldan orðið var við jafn mikið umtal í kringum myndina. Hef heyrt að hún sé ansi hreint svakaleg. Enda ekki furða. Ansi hreint svakalegt málefni sem er verið að skoða.