Jæja, það fór nú ekki betur í mig sveitaloftið en það að nú ligg ég heima með verstu hálsbólgu sem ég hef bara fengið, svei mér þá.. þetta er æði. auðvitað fylger með því þetta dýrindis kvef og beinverkir. ljómandi gott alveg hreint!

Það gengur samt bara allt fínt. ég er búin að vera að lesa og lesa og lesa og lesa greinar um gjóskulagafræði og skyld efni í massavís. svona aðeins að koma sér inn í málin. það er sem sagt nóg að gera og frekar fúlt að vera svona slöpp. eins gott að ég hristi þetta af mér í dag. þetta er ekki ákjósanlegt afmælis-ástand..

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *