Í nafni frjálshyggju og frelsis.

Ekki er neinn réttlátur, ekki neinn.

Ekki er neinn vitring að sjá.

Fæstir leita lengur herrans, sem líf sitt gaf fyrir þá.

Nú ráða ræningjar jörðinni, rándýr sem heimta blóð.

Tortíming, eymd eru allstaðar, ekkert líf þrífst í þeirra slóð.

Veg friðarins vilja ekki þekkja, vargar sem fólkið blekkja.

Gera börnin að morðingjum, mæður að hræætum, feður að aumingjum, sundra fjölskyldum.

Allt í nafni frjálshyggju og frelsis.

Þú sem felur þinn eigin ótta, elur hatur í brjósti þínu.

Lítur aldrei í augu barna þinna, sem allt skilja í hjarta sínu.

Óspillt eru ennþá og saklaus, eftir hvurju ertu að bíða? Þau þurfa á aga og ást að halda,

fálæti þitt fyllir þau kvíða.

Veg sannleikans viltu ekki þekkja, lygina lætur þig hlekkja,

samviskan þín sefur, græðgin ekkert gefur, dóminn enginn tefur, hrokinn þig hefur,

blindað í nafni frjálshyggju og frelsis.

Þingmenn, feður fólks og þjóðar, fullir af spillingu verja

rétt þeirra ríku til þess að valta yfir ráðþrota fólkið og berja.

Trúlaus lýðurinn lánlaus reikar, lamaður, fullur af dofa. Prestarnir prúðir í vinnuna mæta,

þeir vekja engan sem vill sofa. Veg réttlætis vilja ekki þekkja, í vörninni þeirra er skekkja.

Í hjartanu vita, lygin kostar svita, rænir þá næturhita, engill dauðans mun þeirra vitja.

Allt í nafni frjálshyggju og frelsis.

Menn trúa á gullið, Guð er ekki til en gott er að nefna hann stundum. Fullir þeir eru

bölvunar og beiskju, á bræður sína siga þeir hundum. En Guð er til sama hvað þeir segja, en hlustaðu

á þegar þeir tala. Þeir mæla það sem hentar hverju sinni, á fáfræði og fordómum ala.

Veg ljóssins vilja ekki þekkja, vargar sem fólkið blekkja. Hræsnin í hásæti, lýðskrumað læti, rotið innræti,

hýenur í leit að æti. Allt í nafni frjálshyggju og frelsis.

Dómskerfið kalkað, grafarstæði. Kuldinn þar smælingjann bítur. Unga manninn á Hraunið senda,

meðan skilorðið hvítflibbinn hlýtur. Einn daginn þeir þurfa að svara til saka, sú nótt mun reynast þeim erfið.

Þegar undirstöður alls munu hrynja, heimurinn þeirra og kerfið. Veg friðarins vilja ekki þekkja,

vargar sem fólkið blekkja. Gera börnin að morðingjum, mæður að hræætum, feður að aumingjum, sundra fjölskyldum.

Allt í nafni frjálshyggju og frelsis.

(Bubbi Morthens)

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *