Ekki laust við að maður sé drulluslappur. Helvítis pestardrulla. Þoli ekki svona. Maður er í einhverju móki hérna. Ekki gott. En snúum okkur að málefnum líðandi stundar. Bandaríkjamönnum tókst að klúðra enn einu málinu í Írak. Núna hvarf búnaður til að búa til kjarnorkuvopn. Og enginn veit neitt. Hvað voru þeir að gera? Spila kana???? Get it….kani….Einnig hvarf búnaður sem geymdur var undir berum himni. Ótrúlegt alveg hreint. Skil ekki svona vinnubrögð. En allavega. Þegar maður er svona veikur tekur maður uppá ótrúlegustu hlutum. Eins og að horfa á Alþingi á RÚV. Búinn að komast að því að við þurfum fleiri Steingríma Joð Sigfússyni. Ekki spurning. Maðurinn er pottþéttur. Klónum hann bara. Kári Stefánsson getur það alveg. Hann fékk svo mikinn pening frá USA.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *