Monthly Archives: June 2005

fjúhh!!
hvernig á að vera hægt að gera eitthvað í svona veðri? það er að segja eitthvað annað en að slaka á og sleikja sólina. ég reyndi en gekk illa. get ekki einu sinni haft samviskubit yfir því. þegar það er svona veður verður maður að nota tækifærið.. annað getur bara átt sig.

í uppáhaldi í dag: epli, damien rice, beck, þakglugginn á skrifstofunni minni, tölvan mín, u2 miðarnir, snillingarnir frændur mínir, mamma mín sem á afmæli í dag. til hamingju með daginn elsku mamma mín :*

ég eldaði svo svakalega góða ommilettu áðan í hádeginu að ég verð bara að deila því með ykkur. Þetta ætti kanski frekar heima í matargatinu en fokk ðatt. Hún var svona:

3 lítil egg

mjólkurlsetta

3 skinkusneiðar

fetaostur ókryddaður

tvær teskeiðar grænt pestó

ólífuolía til steikingar

salt og pipar

sko, svo saxaði ég niður skinkuna og fetaostinn, hrærði svo bara öllu saman í skál og steikti í olíunni.. borðaði ristað fransbrauð með og maður lifandi hvað þetta var bragðgott! herregúd! svona stórkostlegum stundum verður maður að deila.. og fyrst það var enginn heima til að smakka þá er eins gott að koma þessu á netið med det samme 🙂