Ja hérna. ISDN-ið ekki alveg að gera sig. Hvað um það? Enn einn dýrðardagurinn er kominn hérna í Nesjunum. Ekkert lát á þessari veðurblíðu. Gaman að því. Maður gerir lítið annað en að sleikja sólina í einhverjum göngutúrum hingað og þangað. Kannski að maður skelli sér í veiði í dag. Seinasti túr var svo slappur að maður verður bara að skella sér aftur og reyna að fiska eitthvað meira. Þetta er nú ekki almennilegt sumarfrí fyrr en maður er búinn að grilla að minnsta kosti 2 silunga. Annars höfum við það fínt. Erum að farast úr spenningi yfir tónleikunum!!! GETUM EKKI BEÐIÐ!!!!!

0 thoughts on “

  1. Gylfi Ægisson er með tónleika í pakkhúsinu í kvöld. Heitt á könnunni og kleinur í poka.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *