Category Archives: almennt

Faraldur

Ég er búin að vera á faraldsfæti undanfarna daga. búin að keyra um 1500 kílómetra síðan á föstudaginn í síðustu viku.. Nohh!!
Ég tók mér nefnilega frí síðustu helgi og skrapp í höfðuborgina til að hitta minn heittelskaða. Átti alveg yndislega helgi sem ég vildi að hefði aldrei klárast. Það er svo gott að komast heim til sín að það er alveg ólýsanlegt. Jafnast ekkert á við það. Ég fór líka smá í búðir og keypti á mig nokkrar spjarir. Fór í bíó. Bakaði. Eldaði. Drakk hvítvín. Svaf í rúminu mínu með sængina mína. Yndislegt alveg. Ég keyrði svo til Hornafjarðar á þriðjudagsmorgun eftir skemmtilegan hádegisverð og gott te hjá Hrafnhildi. Í gær gerði ég mér svo smá ferð til Egilsstaða. Átti smá erindi sem ég sinnti og keyrði svo heim. Stoppaði að sjálgfsögðu á Búllunni enda er það skyldustopp þegar maður kemur til Egilsstaða. Sumt fólk heldur að það sé skyldustopp í Bónus en það er rangur misskilningur. Það er Búllan. Búllan segi ég..
En já, núna er ég semsagt komin aftur í vinnuna. Er að hlusta á skemmtilega undirspilið sem gengur stanslaust hérna á jöklasýningunni. Allan daginn. Aftur og aftur. Alla daga. Uppáhalds lagið mitt. Ég elska þetta lag.. trúið mér.

Gengið í skarðið

Í gær fór ég í mína fyrstu göngu upp skarðið. Húrra fyrir mér? játs.. Ég fór með stafina mína, það er að segja ég stafgekk upp.. tók þetta á stafgöngunni. þið skiljið.. Þetta var mjög skemmtilegt og planið er að fara aftur í fyrramálið. Annars átti ég bara notalega fríhelgi í rólegheitunum á Hraunhólnum..

.. so good to me

Jæja, kominn mánudagur.
Ég er í vinnunni eins og endranær. Var að vinna um helgina og gerði bara ekkert merkilegt. Drakk kaffi, fór í göngutúra og hjólatúr, horfði á Prison Break (sem er ykkur að segja alveg að gera út af við mig það er svo spennandi), las í bók, borðaði góðan mat og spjallaði.. svona dæmigerð rólegheit. Verð í fríi næstu helgi og ég hlakka mjög mikið til. Það getur reynt ansi mikið á þolinmæðina mína að vinna hérna í 12 daga án þess að fá frídag með brosið og kurteisina á fullum styrk. Það er samt bara gaman í vinnunni og fullt af skemmtilegu fólki sem ég hitti á hverjum degi. Einn og einn fýlupúki flýtur með.
Má ekki vera að þessu spjali samt, brjálað að gera!

Langur dagur

Langur mánudagur eftir yndislega helgi. Eyddi henni HEIMA hjá mér með mínum kæra. Fór líka út að borða og sá súpermann í bíó og hitti kollu og fjölsk.. en vá hvað það var yndislegt að koma heim. Loksins.. eftír tvo mánuði. Nú er ég aftur komin í sveita sæluna. Lagði af stað úr bænum klukkan sjö í morgun, er núna í vinnunni og verð til klukkan níu í kvöld. Á örugglega eftir að sofna værum svefni í kvöld, þó svo ég hafi glaymt sænginni minni heima..
kveðjur..

Leti

Tekur þá sumarfríið brátt enda. Fúlt. Búið að vera gott sumarfrí. Kannski ekki búinn að gera mikið samkvæmt einhverjum mælikvörðum. Búinn að hafa það gott. HM var skemmtileg keppni og ekki voru NBA úrslitin leiðinleg. Svo er maður búinn að fara í nokkra göngutúrana hérna í sveitinni. Alltaf jafn falleg þessi sveit. Við fundum meira að segja foss uppá Laxárdal sem við höfum aldrei séð áður. Magnað. Ligg nú bara uppí rúmi núna. Er ekki alveg að nenna á fætur. Veit ekki hvað þetta er. Leti heitir það held ég. Já svei mér þá. Kannski að maður kíki út með myndavélina og taki nokkrar. Talandi um myndir. Ef fólk er orðið óþolinmótt að bíða eftir nýjum myndum, þá get ég kætt fólk með því að það er verið að vinna í þessu. Ætli það endi ekki með því að einhverjar myndir rati hérna inn. Hvenær það verður hef ég ekki hugmynd um. Lendum í Reykjavík á föstudag. Það verður gott að komast heim til sín aftur og fara að vinna. Maður hefur ekki gott af því að hanga svona lengi í sumarfríi. Jú…skipti um skoðun…maður hefur gott af því. Svo ætla ég rétt að vona að Svanfríður sé farin að hlusta á Jens Lekman.