Category Archives: tónlist

Ég veit ég veit…Föstudagur og allt það en ég bara stenst ekki mátið. Þetta er ein af mínum uppáhaldssöngkonum og hún syngur þarna eitt af mínum uppáhaldslögum. Ég fæ alltaf óútskýranlegt ofnæmi í augun þegar ég heyri það….getur einhver útskýrt það?

Do you dig the graves?

Ég hélt að ég yrði ekki eldri þegar ég rakst á plötu með Greifunum í tónlistarsafninu hjá mér. Þessi skemmtilega plata heitir Greifarnir dúkka upp og kom út 1996. Þetta er svona bestof plata og ég verð að segja að þarna eru nokkur lög sem mér finnst bara góð. Já…ég skammast mín ekki fyrir það. Ekkert að því að fíla Greifana. Kannski er ég eitthvað skrýtin…það verður þá bara að hafa það. Ég ætlaði nú að skella inn skemmtilegu myndbandi með Greifunum en það er ekki um auðugan garð að gresja í þeim efnum. Þau fáu sem ég fann voru ekkert spes. Ég mæli með því að þú hlustir á Greifana. Einkum plötu sem heitir Dúbl í horn. Stórskemmtileg alveg hreint.

KINGS OF LEON!

Söngvarinn í Kings of Leon er sko uppáhalds söngvarinn minn í dag og Kings of Leon er uppáhalds hljómsveitin mín. Þeir eru að bjarga lífi mínu trekk í trekk þessa dagana, tjahh.. allavega geðheilsunni.

Varð bara að deila þessu með ykkur. Ég er gjörsamlega skotin í þessum gaurum!

Uppáhalds lagið mitt heitir Knocked Up 🙂

Flashback II

Ég get nú ekki skorast undan þessari áskorun hjá Bogga og smelli hér inn stórkostlegu lagi sem kom út árið 1988 á hinni margfrægu safnplötu Frostlög. Þetta er fyrsta lagið á þessari plötu og á það fyllilega skilið, enda frábært lag hér á ferð.