Þetta þarftu: 3 blaðlaukar, 3 sellery stilkar, 1 góður poki af gulrótum, 1 kúrbítur, 1 góður laukur, 3-4 hvítlauksgeirar, 3-4 kjúllabringur, 1 búnt kerfill, 1 búnt fersk steinselja, 1 pottur rjómi, salt og pipar, 2 kjúklingateningar, lárviðarlauf
Svona gerirðu: Byrjað er á því að sjúða kjúllann í potti með smá piparkornum, lárviðarlaufi og ólífuolíu. Þegar hann er tilbúinn þá skuluð þið hella vatninu af og láta kjúllann kólna. Saxið svo allt grænmetið. Síðan er málið að ná sér í stóran og góðan pott og svissa grænmetið allt saman (samt ekki steinseljuna og kerfilinn) þannig að það verði mjúkt. Laukurinn/blaðlaukurinn má allsekki verða brúnn þannig að keep the heat down. Þegar alltsaman er orðið vel mjúkt og gott er ca 1,5 lítra af vatni hellt útí pottinn, hendið líka teningunum útí og látið suðuna koma upp og svo malla í nokkrar mínútur. Hversu lengi fer bara eftir því hvað þið viljið hafa gulræturnar krönsí. Síðan er kjúllanum bætt út í og smakkað til með salti og pipar (fullt af pipar). Svo rétt áður en ykkur langar að borða gúmmelaðið þá skellið þið steinseljunni og kerflinum útí ásamt rjómanum. Passið bara að sjóða ekki rjómann.

Að lokum: Þessi uppskrift er frá snillingnum honum Þorgrími bróður mínum. þetta er sko belgískur matur eins og hann er eldaður í Gent þar sem snillingurinn býr í góðu yfirlæti. Ég smakkaði þetta fyrst í sumar þegar hann eldaði þetta handa okkur á Hraunhólnum. Þetta sló heldur betur í gegn hjá mér og Pésa og við eldum þetta oft. Það er líka hægt að nota heilan kjúkling í staðinn fyrir bringur. það er soldið meira moj því þá þarf að taka af honum skinnið og beinin þegar maður er búinn að sjóða hann. Mér finnst líka best að skera allt grænmetið í svona mjóar ræmur og tæta kjúklinginn niður eftir suðuna í staðinn fyrir að skera hann í bita.. en svona er ég nú skrítin. Svo nota ég líka alltaf matraeiðslurjóma en ekki venjulegan, til að passa línurnar. Allavega þá er þetta algjörlega æðislegur matur og alveg bráðhollur og bara mega gebba ógó þroskó mongó mikil snilld! Takk fyrir mig Toggi minn ![]()