Ég hélt að ég yrði ekki eldri þegar ég rakst á plötu með Greifunum í tónlistarsafninu hjá mér. Þessi skemmtilega plata heitir Greifarnir dúkka upp og kom út 1996. Þetta er svona bestof plata og ég verð að segja að þarna eru nokkur lög sem mér finnst bara góð. Já…ég skammast mín ekki fyrir það. Ekkert að því að fíla Greifana. Kannski er ég eitthvað skrýtin…það verður þá bara að hafa það. Ég ætlaði nú að skella inn skemmtilegu myndbandi með Greifunum en það er ekki um auðugan garð að gresja í þeim efnum. Þau fáu sem ég fann voru ekkert spes. Ég mæli með því að þú hlustir á Greifana. Einkum plötu sem heitir Dúbl í horn. Stórskemmtileg alveg hreint.
já.. Það er fátt sem toppar ðe greifs..
Þessi texti er tildæmis algjör snilld .. og mér finnst hann eiga ágætlega við á þessum hörðustu og verstu.. sérstaklega finnst mér “Abara bara a barara babbe” kaflinn hrein snilld 🙂
SÓLSKINSSÖNGURINN
Lag: Sveinbjörn Grétarsson
Texti: Greifarnir
Er nóg af sólskini í lífi þínu?
ef ekki er ég segi þér
Þú mátt fá svolítið af mínu
af gleði og hamingju hef ég nóg
Farðu í kjólfötum í sund
og ekki er verra að hafa hund
Allt sem þarf er þinn vilji
Slepptu þér og sláðu til
Skiptir engu þó enginn skilji
fáránleikinn er þér í vil
Ber með bindi á bíómynd
að breyta til er engin synd
Farðu á ball og taktu ömmu með
Aldrei að vita hvað gæti skeð
Dansa tryllt, tjútta og djamma
taktu með þér sviðakjamma
Farðu út í sólskinið
og leggstu ber á malbikið
Ber með bindi á bíómynd
að breyta til er engin synd
Með lambhúshettu
Í föðurlandi
Farðu í kjólfötum í sund
og ekki er verra að hafa hund
Abara bara a barara babbei (3X)
Af því bara a barara bei
Babara barara bei
babara barara bei
Ber með bindi á bíómynd
að breyta til er engin synd
jahá… ég er kjaftstopp..
ég skil það vel.. snilldin er svo gríðarleg 😉
Vá, hvað ég vona að þetta sé kaldhæðni…
Vóóó hvað þið eruð gömul 😉
ég er með ella og togga í liði í þessari umræðu,. skil ekki hvað þið hin eruð að tala um